22nóvember

Færsla númer 2

Ætla nú ekki að gefust upp á fyrsta degi..hehe.. þannig að ég er að spá í að blogga hérna inni núna í kvöld.. hef hvort sem er svo lítið að gera:D En annars er bara það sama að frétta og síðast sennilega .. nema mér var að detta í hug að fara í Boot Camp.. hehe.. veit ekki alveg hvað ég er að spá því eftir síðasta námskeið hélt ég að ég færi aldrei aftur! hehe.. þetta er alls ekki leiðinlegt en ég er ekki alveg dýrið til að vakna 6 þrjá daga í viku.. en kannski mig langi það núna þegar maður er orðin svo gömul að maður er alltaf sofnuð fyrir 10 á kvöldin.. en ég auglýsi eftir manneskju sem langar að koma með mér í Boot Camp í Janúar.. og sú manneskja má ekki vera löt og þarf að mæta með mér.. nenni ekki að mæta alltaf ein..:D:D

Svo var ég líka að spá dáltið mikið í Jólagjafir.. eru nottla jólagjafabæklingar út um allt.. en ég var bara að spá hvað maður fær alltaf mikið í jólagjafir sem maður í rauninni ÞARF ekki að eiga þó manni langi að eiga það.. var eitthvað að spá hvað mig langar að gefa Ásgeiri og hvað mig langar í frá honum.. en í rauninni er ekki neitt sem okkur vantar í augnablikinu... en samt þarf maður að fá einhverja flotta jólagjöf því það er nú það sem jólin snúast um þessa dagana.. En ég er að komast í geðveikt jólastuð.. fólk að byrja að skreyta og desember nálgast:D en ég bíð bara eftir snjónum...

Er að spá að fara í ljós eftir vinnu í kvöld því maður verður jú að vörka tanið fyrir jólin.. þýðir ekkert annað.. en er mikið að spá hvað er um að vera um helgina og það hefur enginn komið inn á síðuna mína til að segja mér það.. ekki nema von þar sem ég blogga 3 á ári...

Svo er ég mikið að spá þessa dagana hvernig þessir blessuðu skólar eru... ég er í 4 fögum og það er alltaf eitthvað um að vera..líður ekki vika án þess að það séu ekki 2 próf of minnst 1 fyrirlestur.. og svo er alltaf einhver bölvuð heimavinna..hvernig væri að nota kennslustundirnar bara til þess að læra.. jésús hvað ég er eitthvað pirruð þessa dagana... var brjáðar að gera þessa viku en ég lærði og lærði svo ég væri búin að öllu þegar Ásgeir kæmi heim.. en neinei bara 2 próf í næstu viku og 1 munnlegt.. ekki alveg mín sterka hlið þó mér finnist nú gaman að tala.. ég verð í 6 fögum eftir jól og ég verð sennilega bara límd við bækurnar..gaman það.. 

Heyrðu skellti mér bara í dagskrána  til að gá hvað var um að á vera á Laugardaginn: 

Kaffi Akureyri - DJ Láki 
Vélsmiðjan - Spútnik 
Sjallinn - Lokaður vegna einkasamkvæmis - Árshátíð vélsleðamanna 
Amour - Einar Ágúst og Vignir Snær 

Ætli maður endi ekki bara undir sæng að horfa á einhverja mynd þessa helgina.. hef allavegana ekki heyrt í mörgum sem ætla út um helgina! 

En ég ætla að fara að gera eitthvað.. 

Ragga   

22. nóvember 2007 klukkan 21:07
Ragnheiður Björnsdóttir
2 athugasemdir
20nóvember

Sú gamla byrjuð aftur...

Áttaði mig á því að ég hef alveg rosalega mikinn tíma til að vafra á netinu og alltaf að skoða skemmtilegar síður og mig langaði að eiga eina líka:D er reyndar búin að vera með þessa í rúmt ár og bloggaði held ég þrisvar.. en nú ætla ég að byrja aftur og vona að ég standi mig í þetta skipti... En annars er lítið að frétta er bara í vinnunni að hlusta á nýja langið með Aliciu Keys og það er ekkert smá flott hjá kellu.. Svo bíður maður bara spenntur eftir því að kallinn komi heim af sjónum en það er á Sunnudaginn.. Kannski maður fari eitthvað út á laugardaginn til að fagna því að hann sé að koma heim.. við Tanja erum mikið að spá í að fara út á laugardaginn enda sennilega eitthvað um að vera í Sjallanum þar sem það er Snjósleðaárshátíðin:D muna kannski ekki margir eftir því en Magni og Á móti sól voru að spila í fyrra..
Svo verð ég sennilega að fara að setja inn nýjar myndir og nýtt lúkk á síðuna, orðið frekar gamalt:D Endilega látið vita hvort það sé eitthvað að gerast um helgina:D

En hef þetta ekki lengra í bili og nýtt spennandi blogg kemur sennilega fljótlega;)

Ragga

20. nóvember 2007 klukkan 20:54
Ragnheiður Björnsdóttir
Engin athugasemd
22mars

Farin suður..

Jæja.... Ragga ætlar að skella sér suður í fyrramálið og verða alla heglina...:D Ætla rétt að skreppa í búðir og fara líka í IKEA:D  En þetta þýðir að ég missi að snocross-mótinu á Ólafsfirði:( Þannig að þið sem mætið verðið að vera dugleg að hvetja Ásgeir fyrir mig.. en hef þetta ekki lengra..

Ragga
22. mars 2007 klukkan 13:47
Ragnheiður Björnsdóttir
7 athugasemdir
13mars

Helgin á enda...


Sælir og sælar..
Helgin var ekkert smá skemmtileg:D Við Heiður Sif fórum saman á mótið og skemmtum okkur konunglega á föstudaginn inni á herbergi að máta föt og horfa á sjónvarpið:D en svo fórum við nú eitthvað út líka.. á kinninguna og að horfa á X-factor og svona:D Svo um kvöldið var borðað og svo einhver "samkoma" á hótelinu.. Stebbi Gull og fleiri héldu einhvern skemmtilega ruglaðan leik... og svo var bara farið að sofa snemma... Og svo kom laugardagurinn.. Ester og Sólveig komu.. Fórum að kröflu þar sem mótið var haldið.. og Sólveig náði að pikkfesta sig.. og einhverjir gaurar komu og hjálpuðu henni.. hehe ..fyndið.. ekkert smá gott veður:D Sól og blíða bara:D Samt ömurleg braut! hef aldrei séð annað eins.. annaðhvort náði maður startinu eða bara hluta af brautinni.. svo var fólk bara hlaupandi á milli... hehe.. asnalegt... eftir 2 hít fórum við frænkurnar bara inn í bílinn hjá Bjössa.. skemmtum okkur þar... en úrslitin voru þessi:

Ásgeir minn:D


Úrslit í Unglingaflokki.

1.Baldvin Þór Gunnarsson 

2.Bjarki Sigurðsson

3.Bjarki Þór Halldórsson


Úrslit í Sportflokki.

1.Kári Jónsson

2.Sæþór Sigurðseinsson

3.Páll Snorrason


Úrslit í Pro flokki.

1. Jónas Stefánsson

2.Steinþór G. Stefánsson

3.Ásgeir Frímannson

En þetta var samt ágætt mót:D Það er hægt að skoða myndir frá mótinu http://www.flickr.com/photos/magnussveinsson/sets/72157594583161993/
http://www.cobolt.is/myndir_myvatn3_mot1.html
Og svo er hægt að skoða stöðuna til íslandsmeistara hér
http://www.mylaps.com/championship/view.jsp?id=1083

En já.. nóg um það.. svo leið náttúrulega á kvöldið og var tekið sig til og gert sig fína:D Svo var matur og skemmtiatriði, verðlaunaafhending og fleira! Og svo byrjaði ballið.. Það var mikið stuð.. svo þarf ég nú ekkert að segja meira frá kvöldinu því það virðist sem allir viti það miklu betur en ég! Ótrúlegt! En Ester á nokkrar góðar myndir frá helginni.. fáum sennilega að henda þeim hérna inn við tækifæri! En annars segi ég nú bara takk fyrir helgina þeir sem voru á svæðinu:D

13. mars 2007 klukkan 09:06
Ragnheiður Björnsdóttir
2 athugasemdir
07mars

Snocross í Mývatnssveit:D



Jæja.. nú fer að koma að helginni.. og þessari helgi hef ég beðið lengi eftir.. það er nefnilega  Snocross í Mývatnssveit BrosandiBrosandi Og við Ester erum nú búnar að plana helgina, en ekki of mikið því þá er hætta á því að það verði of leiðinlegt. En Mývatnsveitamótið er eitt af skemmtilegustu mótum ársins.. Hér er dagskrá helgarinnar:


Föstudagur 9. mars

 kl.15:00:
Brautarkeppni við Kröflu
  
 kl.18:00: Sundpartý - Lónið
 kl.21:00:  Setning Mývatns 2006
 kl.21:00: Varðeldur tendraður
 kl.21:10: 
 Kynning keppenda í snjókrossi
 kl.21:30: Flugeldasýning
 kl.22:00:
  Barkvöld í Selinu

Laugardagur 10. mars

 kl.10:00:Ísspyrna við Skútustaði
 kl.11:30 og 12:30:
 Æfingar í Snjókrossi
 kl.14:00: 
 Snjókross
 kl.19:30-20:00: Fordrykkur og vídeósýning
 kl.20:30: Veisla kvöldsins byrjar
 kl.21:30: Verðlaunaafhending
 kl.23:00: Dansleikur


Spennandi helgi.. er búin að reyna að komast að því hverjir verða að spila á dansleiknum en finn það hvergi.. svo ef þú veist það máttu endilega láta mig vitaBrosandi  Annars lýst mér bara ágætlega á þetta.. er það ekki Ester?

07. mars 2007 klukkan 11:17
Ragnheiður Björnsdóttir
1 athugasemd
26febrúar

Perfect day

Sæl..

Dagurinn byrjaði jafn vel og alla aðra daga.. Ásgeir fór í löndun til Ólafsfjarðar klukkan 5 í morgun og það þýddi að ég þurfti að labba í skólann.. og Ragga svaf yfir sig eins og svo oft áður og þurfti að HLAUPA í skólann til að mæta á réttum tíma.. þegar ég kom í stofuna voru engir mættir.. og þá loksins mundi ég að við ættum ekki að mæta fyrr en hálftíma seinna.. Gott Ragga:D

En helgin var yndisleg.. Fór til Húsavíkur snemma á föstudeginum og fór í litun og svo að versla föt og svona.. og fór svo í afmæli til pabba gamla og horfði á X-FACTOR.. flestir voru svona misgóðir.. en allavega þá held ég með Gylfa og færeyingnum sem ég man ekki hvað heitir.. En svo fór ég bara heim til Ásgeirs míns og við fórum bara að sofa... Daginn eftir var skellt sér í ak-inn og spjallað við gellurnar þar í klukkutíma eða svo.. og svo skelltum við Sólveig okkur á SNOCROSS á vaðlaheiðinni.. það var ekkert spes veður og við eyddum miklum tíma í bílnum að spjalla og hlusta á skímo.. en Ásgeiri mínum gekk ágætlega og lenti í 3. sæti svo nú er bara beðið eftir næsta móti sem verður á Mývatni eftir tvær vikur:D Um kvöldið fórum við í sumarbústað til mömmu og pabba og Nönnu og Helga.. Skelltum okkur í pottinn eftir kvöldmat og svo var farið inn og spilað meistarinn - konur á móti körlum.. Og eftir spennandi keppni unnu karlarnir! Á sunnudeginum var aftur skellt sér í sumarbústað og í pottinn.. Við Ásgeir og Helgi duttum inn í einhvern krókódílaþátt og hreyfðum okkur ekki fyrr en hann var búinn.. spennandi.. hehe:D Og seinnipartinn skelltum við okkur til Ólafsfjarðar í mat:D Þannig var nú helgin hjá mér!  

Ragga
26. febrúar 2007 klukkan 09:10
Ragnheiður Björnsdóttir
1 athugasemd
21febrúar

tenglar

Jæja jæja.. var að bæta inn tenglum og einhverju fleiru á síðuna mín.. Ef þú ert ekki í tenglum, endilega láttu vita :D Annars var ekki mikið annað sem ég ætlaði að segja.. ætla að einbeita mér að frönskunni næstu 40 mín eða svo:D

Au revoir
21. febrúar 2007 klukkan 11:29
Ragnheiður Björnsdóttir
3 athugasemdir
20febrúar

Eitt blogg fyrir Ester...

Jæja.. eins og þit vitið flest öll þá er Ester Vilshelmsdóttir frekar mikil frekja.. og þegar hún vill eitt stykki blogg.. þá fær hún eitt stykki blogg...

En annars er lítið að frétta... Helgin var fín.. Var að vinna og á laugardaginn var afmæli hjá Lilju og Erlu Söru! Við Ester byrjuðum heima hjá mér og við skulum ekki fara nánar út í það hvernig ástandið var heima áður en haldið var í bæinn.. hehe.. flott Ester:D en já get því miður ekki sett inn myndir því það voru bara teknar fimm eða eitthvað.. en annars var kvöldið ágætt...

Um næstu helgi er sennilega Snocross hérna á Akureyri eða nánar einhversstaðar upp á heiði.. vei.. hlakka til.. og ég verð ekkert að vinna um helgina.. það verður ágætt.. En nóg blogg í bili..

Ragga
20. febrúar 2007 klukkan 13:10
Ragnheiður Björnsdóttir
2 athugasemdir
15febrúar

Góðann daginn!

Er í smá vandræðum þessa dagana.. komin með leið á rót og meiri rót.. þá meina ég hárið á mér! Og svo fara ljósu strípurnar svo illa með mitt hár! Svo ég er búin að velta fyrir mér lengi hvort ég eigi einfaldlega að lita á mér hárið brúnt.. en þori því ekki alveg þar sem ég er búin að vera ljóshærð í sautján og hálft ár! Endilega athugið skoðanakönnunina og auðveldið mér valið.
15. febrúar 2007 klukkan 08:48
Ragnheiður Björnsdóttir
1 athugasemd
14febrúar

Loksins allar myndirnar úr partýinu komnar inn!

Jæja stelpur:D
Nú eru allar myndirnar úr partýinu okkar komnar inn. Ég skellti bara öllum inn svo ef það sé einhver ósáttur með einhverjar myndir er bara að hafa samband og við reddum því. Versta er að það voru engar myndir teknar eftir að við fórum út, var ekki alveg í ástandi til þess held ég nú bara. En margar skrautlegar myndir sem gaman er að skoða.
Kv. Ragga
14. febrúar 2007 klukkan 11:26
Ragnheiður Björnsdóttir
Engin athugasemd

Aðalvalmynd

Auglýsing

Klukkan

Innskráningar kubbur